Krónan Skeifunni 19

Krónan opnaði nýlega glænýja verslun í Skeifunni 19 ásamt Elko þar sem Myllan var áður, Tokyo Sushi og Olifa Pizzeria leynast einnig inn í Krónunni.
Leitast var eftir að nota eins umhverfisvænar lausnir og völ er á og kom reynsla Verslunartækni sér vel í þeirri leit.
Helstu lausnir sem að Verslunartækni kom að:

1. Inn- og útgönguhlið frá Itab ásamt kassaborði með beltum.
2. Verslunar- og grænmetishillur frá Linovag Ladenbau sem eru iðulega nefndar Linde hillur.
3. Innkaupavagnar frá Araven og Rabtrolley, kerrunar frá báðum framleiðendum eru gerðar úr endurunnu plasti sem að kemur úr sjónum.
4. Kælar og frystar frá Pastorfrigor með lokun sem að hámarka orku nýtingu.
5. Brauð- og bakarís innréttingar frá Vitrum ásamt afgreiðsluborði hjá Tokyo Sushi.
6. Stálborð, handlaugar, brettarekkar og tjakkar á baksvæði kom einnig frá Verslunartækni.